Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi skorar á formann flokksins, Bjarna Benediktsson, að efna gefin loforð um að gera Guðrúnu Hafsteinsdóttur að ráðherra. Þetta kemur fram í áskorun kjördæmisráð sendi frá sér í vikunni þar segir einnig.

“Samkvæmt ítrustu túlkunum á hinum svokölluðum „12-18 mánuðum,” þá er tíminn runninn upp, og rúmleg það. Suðurkjördæmi var eina landsbyggðarkjördæmið þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 1. mann kjörinn.
Sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi gengu af síðasta landsfundi fullvissir um að Guðrún Hafsteinsdóttir yrði ráðherra snemma á vormánuðum 2023. Núna er kominn tími á að leggja orð í efndir. Það er algjör lágmarkskrafa um að hún taki sæti í ríkisstjórn við lok þingveturs.”