Á hluthafafundi Ísfélags Vestmannaeyja hf í dag samþykktu hluthafar að sameinast Ramma hf. Ísfélagið er yfirtökufélagið og munu hluthafar Ramma fá hlutabréf í Ísfélaginu. Félagið mun bera nafnið Ísfélag hf enda er nú starfsemi félagsins á fjórum stöðum um landið; í Eyjum, á Þórshöfn, á Siglufirði og í Þorlákshöfn. Um fjörutíu manns, hluthafar og starfsmenn, sóttu fundinn í dag.