Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., kom á fund bæjarráðs í vikunni og gerði grein fyrir rekstri félagsins fyrstu fimm mánuði ársins, m.a. farþegaflutningum og rekstrarstöðu. Staða Herjólfs er í samræmi við áætlanir um starfsemi og rekstur félagsins. Fyrstu fimm mánuði ársins var farþegafjöldi Herjólfs 107.961 farþegar.