Eyþór Daði Kjartansson hefur gengið til liðs við KFS. Hann lék sinn fyrsta leik um helgina og skoraði eitt af fjórum mörkum liðsins í sigri á Ými. Eyþór mun leika með liðinu þar til hann heldur aftur erlendis í nám. KFS er sem stendur í sjöunda sæti 3. deildarinnar. “Þetta er mikill fengur fyrir KFS og gaman að segja frà því að í KFS eru eingöngu heimamenn sem vilja og hafa gaman að því að spreyta sig àfram í knattspyrnu,” sagði Óðinn Sæbjörnsson þjálfari liðsins í samtali við Eyjafréttir.