Primex ehf. er íslenskt líftæknifyrirtæki á Siglufirði og nú dótturfélag Ísfélagsins. Það hóf framleiðslu árið 1999 með það að markmiði að nýta þá rækjuskel sem til féll hjá rækjuverksmiðjum landsins og áður hafði verið hent í sjóinn.

Kítósan eru græðandi lífvirkar trefjar í vörum Primex sem unnar eru úr fjölsykrunni kítín sem má finna í stoðgrind hryggleysingja eins og til dæmis skel- og skordýra. Þessar náttúrulegu trefjar hafa þann eiginleika að vera jákvætt hlaðnar og bindast auðveldlega við neikvætt hlaðin efni eins og slæmt kólesteról og fitu, sindurefni og rauð blóðkorn.

„Þegar við vorum að byrja var kítósan lítt þekkt hér á landi en eftir að hafa komist í kynni við íslenska vísindamenn sem höfðu starfað í áratugi hjá DuPont í Bandaríkjunum við rannsóknir á kítósan var ákveðið að reisa líftækniverksmiðju hér á Sigló” segir Sigríður Vigfúsdóttir framkvæmdastjóri Primex. Hún segir það mikil forréttindi að fá að lifa og hrærast í nýsköpunarheiminum með þeim sigrum og ósigrum sem því fylgja. Primex hlaut nýsköpunarverðlaun árið 2012 fyrir að framleiða verðmæti úr úrgangi og ná árangri á erlendum mörkuðum.

Sigríður Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Primex.

Trefjarnar skráðar sem lækningatæki

Af þeim vörumerkjum sem Primex á er ChitoCare þekktast á landinu. Undir merkið falla ýmsar lækningavörur fyrir sár, húðvörur og fæðubótarefni. Merkið LipoSan Ultra er eftirsótt í Bandaríkjunum og Asíu og eru fyrirtæki eins og Now Foods að nota það í sínar vörur. „LipoSan eru lífvirkar trefjar sem hafa góð áhrif á meltingu, þyngdarstjórnun og slæmt kólesteról. Annars er ChitoCare medical sára -og örgelið okkar virkilega vinsælt enda náttúruleg vara með mikla virkni hvort sem um er að ræða alvarleg sár eða ýmsa húðkvilla. Það og ChitoCare medical sáraspreyið eru skráð sem lækningatæki í Evrópu með klínískar rannsóknir og einkaleyfi á bak við sig. En okkar vinsælasta vara er þó fæðubótarefnið Hair, Skin & Nails en það er þróað af Dr. Helene Lauzon framkvæmdastjóra rannsókna og þróunar hjá okkur” segir Sigríður. 

Nítján ára drengur með alvarleg brunasár. Eftir tveggja mánaða meðferð með ChitoCare medical sárgelinu voru engin sjáanleg ör.
Sex klukkutímum eftir sólbruna og notkun á ChitoCare medical græðandi spreyi fyrir sólbruna.

„Ég vil þakka Eyjamönnum fyrir frábærar viðtökur á ChitoCare beauty snyrtivörunum og ChitoCare medical sáravörunum í gegnum árin og ekki síst stelpunum í Apótekaranum fyrir frábært samstarf. Nú er ChitoCare orðið hluti af nýju Ísfélagi Eyjamanna og Siglfirðinga og við hjá Primex hlökkum mikið til samstarfsins” segir Sigríður.

Greinina má einnig lesa í 13. tbl. Eyjafrétta.