Fimm leikir í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu fara fram í dag, laugardaginn 29. júlí. ÍBV fær Valskonur í heimsókn til sín og byrjar leikurinn klukkan 16:00 á Hásteinsvelli.

Valur spilaði síðast leik 9. júlí sl. og unnu þá Selfoss með 3 mörkum. Það er þó nokkuð styttra síðan Eyjakonur spiluðu leik en þær léku gegn Tindastóli síðasta sunnudag og töpuðu með einu marki gegn fjórum.

ÍBV situr í 8. sæti deildarinnar með 13 stig úr jafn mörgum leikjum á meðan Valur situr í því öðru með 26 stig úr 12 leikjum.