Uppbyggingin hjá ILFS heldur áfram en þessa dagana er verið að steypa upp lífsíur (e. biofilters) fyrir RAS2 og RAS3. Frá þessu er greint í frétt á vef félagsins.

„RAS (Recirculating Aquaculture System) kerfið í seiðastöðinni nýtir lífsíur til að hreinsa vatn stöðvarinnar fyrir endurnýtingu en úrgangur sem myndast í ferlinu er hreinsaður úr í fráveitukerfi stöðvarinnar og nýtist til landgræðslu og endurheimtar á gróðurþekju, til dæmis í Vestmannaeyjum.”

„En fiskar lifa í beinni og stöðugri snertingu við umhverfi sitt, vatnið. Þar sem allt sem fer í fiskinn (fóður) fer líka úr fiskinum (þvag og saur), það þarf því að hreinsa umhverfið og meðhöndla til að halda fiskinum heilbrigðum og ánægðum. Þetta er mjög mikilvægt ferli í RAS kerfum þar sem við viljum halda magni vatns sem skipt er út eins litlu og mögulegt er.”

Ljósmynd: ILFS