Karlalið ÍBV í handbolta leikur sinn fyrsta heimaleik í Olísdeild karla á þessu tímabili í kvöld. Andstæðingarnir að þessu sinni eru Haukar. Bæði lið hafa leikið tvo leiki á tímablinu og sigrað annan þeirra. Þau njóta bæði þess vafasama heiðurs að hafa tapað fyrir nýliðum í deildinni.

Flautað verður til leiks í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum klukkan 19:30 í kvöld.