Fjórða umferð Olísdeildar kvenna hefst í Vestmannaeyjum í dag með viðureign ÍBV og Aftureldingar. Til stóð að leikurinn færi fram í gær. Vegna þátttöku ÍBV í Evrópukeppni um næstu helgi er þess freistað að færa leikinn framar í vikuna. Flautað verður til leiks klukkan 19:00.