Síðari viðureignin ÍBV gegn portúgalska liðinu Colegio de Gaia fer fram í dag klukkan 17. Samanlagður sigurvegari leikjanna tekur sæti í 2. umferð.

ÍBV skoraði sex síðustu mörk og tryggði sér þar með sigur á portúgalska liðinu, 27:23, í fyrri viðureign liðanna í gærkvöldi í 1. umferð Evrópubikarkeppninnar í handknattleik kvenna. Leikurinn fór fram í Gaia, í nágrenni Porto.

Mörk ÍBV: Birna Berg Haraldsdóttir 9, Karolina Olszowa 6, Ásdís Guðmundsdóttir 5, Britney Cots 2, Elísa Elíasdóttir 2, Sunna Jónsdóttir 1, Sara Dröfn Ríkharðsdóttir 1, Birna María Unnarsdóttir 1.
Varin skot: Marta Wawrzynkowska 13, 36,1%.