Atburðarás síðustu daga hefur sýnt okkur hjá ÍBV-íþróttafélagi að það vill enginn hlusta. Við höfum kallað og kallað hátt en fáum lítil sem engin svör. Jafnvel þó heilsu íþróttafólks sé stefnt í hættu.

Við kölluðum eftir samtali um velferð leikmanna. Það skipti engu máli hvert við leituðum,
Haukar, HSÍ eða ÍSÍ. Alger þögn frá Haukum, HSÍ benti okkur á það að þátttaka í Evrópukeppni væri okkar eigið val og þeir myndu ekki breyta leikjaskipulagi. Þrátt fyrir að við skyldum benda þeim á það ítrekað að þetta skipulag væri beinlínis hættulegt leikmönnum. Það fengum við staðfest frá læknum, sjúkraþjálfurum og styrktarþjálfurum. Það dugði ekki til og er sannarlega dapurlegt að sambandið skuli ekki hlusta á svo alvarlegar athugasemdir.

Við bundum vonir við það að ÍSÍ myndi rétta leikmönnum okkar hjálparhönd og setja, þó ekki væri nema, spurningarmerki við þetta skipulag HSÍ. Það bar engan árangur.

Óumflýjanlega vakna upp spurningar í svona atburðarás. Hefði verið hlustað ef þetta væri karlalið ÍBV? Hefði einhver brugðist fyrr við ef það væru Valsstelpur sem hefðu lent í svona leikjaálagi? Það er ljóst að leikir hafa verið færðir áður vegna þátttöku liða í Evrópukeppni Afhverju ekki núna?

ÍBV hefur af miklum metnaði og myndarskap skapað öfluga umgjörð í kringum lið sín í handknattleik. Meistaraflokkur kvenna hefur náð framúrskarandi árangri síðustu ár og haldið merkjum handknattleiks íslenskra kvenna á lofti í evrópukepppni. Kvennalið ÍBV hefur leikið 14 evrópuleiki á síðustu þremur árum. Það er gríðarleg vinna leikmanna og þjálfara sem fer í það að vinna sér inn rétt til þess að fá að taka þátt í Evrópukeppni. Því þykja okkur þau svör HSÍ að það sé okkar val að taka þátt, mjög dapurleg. Stelpurnar og strákarnir okkar unnu sér inn rétt til þess að taka þátt. Við skulum hafa það alveg á hreinu.

ÍBV-íþróttafélag fordæmir vinnubrögð HSÍ og Hauka og það er von félagsins að HSÍ setji sér skýra stefnu er varðar þátttöku liða í Evrópukeppni.

Annað hvort styður HSÍ þáttöku liða í Evrópu og reynir þá að vinna með þeim eða ekki.
Með vinsemd og virðingu



ÍBV-íþróttafélag.