ÍBV tekur í dag á móti austurríska handknattleiksliðið Förthof UHK Krems í seinni leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppni karla í handknattleik. Fyrri leiknum í Austurríki lauk með tveggja marka sigri Krems 30-28 en ÍBV leiddi í hálfleik 10-13.

Það er því ljóst að ÍBV á ágætis möguleika á því að krækja sér í sæti í 16 liða úrslitum keppninnar. Flautað verður til leiks í Vestmannaeyjum klukkan 14:30.