Björgunarfélag Vestmannaeyja hefur opnað flugeldasöluna við Faxastíg og fyrir netsölu, https://eyjar.flugeldar.is. Þar er hægt að skoða það sem er á boðstólum og panta á netinu og svo sækja vörurnar í verslun við Faxastíg.

Verslun við Faxastíg verður opin:
29.12. 13-22
30.12. 10-22
31.12. 09-16

Í kvöld ætlar BV að vera með sölusýningu kl. 20:00, við húsnæði félagsins við Faxastíg.

“Áður en sýningin fer af stað ætlum við að setja inn myndir af þeim vörum sem við munum sýna þannig að þið getið fylgst með hvað er um að ræða.” Segir í tilkynningu frá félaginu.