Á fundi bæjarráðs í vikunni var tekin fyrir umræða um samgöngumál í Vestmannaeyjum. Þar kom fram að siglingar Herjólfs til Landeyjahafnar hafa verið afar stopular frá því í október og þá fyrst og fremst vegna dýpis við hafnarmynni og í höfninni sjálfri. Þá hefur þurft að sigla til hafnarinnar á háflóði þegar önnur skilyrði eru til staðar. Öllum er ljóst að höfnin er ekki sú heilsárshöfn sem lofað var á sínum tíma. Það er því nauðsynlegt að rannsóknir verði kláraðar og höfnin verði löguð þannig að hún þjóni sínu hlutverki allt árið um kring. Þolinmæði bæjarbúa gagnvart sjósamgöngum í vetur er á þrotum.

Bæjarráð telur stöðuna óásættanlega í samgöngumálum við Vestmannaeyjar. Algjört ráðaleysi af hálfu ríkisins einkennir það verkefni að tryggja að Landeyjarhöfn sé heilsárshöfn. Bæjarstjóri hefur fyrir hönd bæjarráðs, óskað eftir því að fá innviðaráðherra og vegamálastjóra, að mæta á íbúafund til Eyja í janúar til að fara yfir þá stöðu sem uppi er og þær lausnir og framkvæmdir sem eigandi hafnarinnar sér fyrir sér á komandi árum.

Bæjarstjóra er falið að óska eftir upplýsingum frá Vegagerðinni um það hvort og hvernig Björgun sé að standa skilyrði útboðs vegna dýpkunar í ljósi þess hve illa hefur gengið að dýpka höfnina undanfarna mánuði.

Bæjarráð skorar á þingmenn kjördæmisins og aðra sem valdið hafa að tryggja að löngu tímabærar endurbætur verða gerðar á höfninni og felur bæjarstjóra og koma niðurstöðu ráðsins á framfæri við þá sem málið varðar.

Þá ítrekar bæjarráð þá kröfu um að flugferðum milli lands og Eyja verði fjölgað verulega á meðan höfnin virkar ekki sem skildi.