Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni brotnaði rör hjá Álfsnesinu í nótt og er skipið því farið ti Þorlákshafnar til viðgerðar. Þrátt fyrir einmuna veðurblíðu í Landeyjahöfn hefur gengið illa að dýpka síðan dýpið var mælt laugardaginn sl. og staðan því lítið breyst. Því liggur fyrir að áfram þarf að sigla á háflóðum til Landeyjahafnar ef mögulegt er og ljóst að öll viðmið við siglingar þannig lækka vegna ónægs dýpis.

Búið er að gefa siglingaáætlun út fimmtudag.
-Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 09:00 og 20:30
-Brottför frá Landeyjahöfn kl. 11:00 og 22:00

Hvað varðar siglingar fyrir föstudag verður gefin út tilkynning eftir hádegi á morgun fimmtudag.