Eyjatónleikar í Höllinni föstudagskvöldið 3. maí kl. 20.00

Styrktartónleikar og styrktarsöfnun Eyjamanna fyrir Grindvíkinga!

Vestmannaeyjar 1973

Blákaldur veruleikinn sló okkur Eyjamenn um miðjan vetur 1973.  Á fallegu en köldu vetrarkvöldi byrjuðu Eyjarnar aðeins að hristast, þó ekki þannig að fólk hafi endilega reiknað með því að innan örfárra klukkustunda myndi Eyjan rifna upp og gos hefjast nærri byggð á Heimaey.  Móðir náttúra minnir á sig reglulega á landi íss og elda.

Eyjamenn þekkja það betur en flestir aðrir hvernig það er að neyðast til að yfirgefa heimili sín og reiða sig á stuðning annarra á óvissutímum.  Við Eyjamenn þurftum að yfirgefa heimili okkar fyrir rúmu 51 ári en gátum síðar snúið heim. Það ferli tók um og yfir hálft ár en uppbyggingin tók mun, mun lengri tíma.

Grindavík í dag

Nú hafa Grindvíkingar þurft að þola jarðskjálfta og mikið óöryggi vel á þriðja ár.  Smátt og smátt varð ljóst að staðan í Grindavík væri orðin grafalvarleg og að líklegt væri að óvissan myndi á endanum leiða til þess að íbúar þyrftu að undirbúa það að yfirgefa bæinn

Grindvíkingar yfirgáfu heimili sín þann 10. nóvember síðastliðinn og enn sér ekki fyrir endann á þeirri óvissu sem íbúar standa frammi fyrir. Því má segja að Grindvíkingar séu í verri stöðu en við Eyjamenn vorum í fyrir rúmri hálfri öld. Eftir margar jarðskjálftahrinur þar sem Grindavíkurbær var orðinn illa farinn eftir sprungumyndanir og jarðsig, byrjaði að gjósa við bæinn 14. janúar síðastliðinn og á endanum fór hraun að renna í átt að byggðinni sem tók að lokum þrjú hús.  Allri þessari óvissu fylgir svo að atvinnuöryggi er lítið, fyrirtæki mörg óstarfhæf og ýmis kostnaður bætist við nánast hvert einasta heimili íbúa bæjarins.

Eyjamenn styðja Grindvíkinga

Það hefur verið áberandi hversu mikla samkennd og hlýhug Eyjamenn hafa borið til Grindvíkinga á þessum tímum og í samfélaginu er ríkur vilji til að sýna stuðning okkar áþreifanlega í verki.

Við Eyjamenn ætlum því að halda styrktartónleika fyrir Grindvíkinga föstudagskvöldið 3. maí næstkomandi og samhliða sölu á tónleikana, setjum við af stað söfnun hjá einstaklingum og fyrirtækjum sem vilja leggja hönd á plóg. Reikningsnúmerið er 0185-26-000270, kennitala er 270246-4199

Sótt hefur verið um leyfi sýslumanns fyrir söfnuninni og hún unnin í samráði við Grindarvíkurbæ, en þar er sérstakur sjóður settur á laggirnar með sérstakri úthlutunarnefnd.

Söfnunarnefndin hér í Eyjum er skipuð þeim Höllu Svavarsdóttur, Njáli Ragnarssyni, Sigurhönnu Friðþórsdóttur, Hildi Sólveigu Sigurðardóttur, Bjarna Ólafi Guðmundssyni og Gísla Valtýssyni, sem verður sérstakur fjárgæslumaður söfnunarinnar.

Á tónleikunum 3. maí koma listamenn frá Eyjum til með að skemmta og flytja tónlist í anda Eyjatónleikanna í Hörpu.  Þeir sem þegar hafa boðað komu sína eru Karlakór Vestmannaeyja, meðlimir úr Kvennakór Vestmannaeyja, Blítt og létt hópurinn, hljómsveitin Gosarnir með þá Gísla Stefáns, Jarl Sigurgeirs, Dúna Geirs, Sæþór Vídó, Þóri Ólafs og Bigga Nielsen innanborðs og fá þeir nokkra gestasöngvara, meðal annars Unu Þorvalds, Kristínu Halldórs, Tóta Óla og Hafþór Hafsteins, hljómsveitin Molda, Unnar Gísli eða Júníus Meyvant og sérstakir gestir verða Matti Matt og Védís Hervör. Það er því óhætt að lofa miklu fjöri í Höllinni og hverrar krónu virði að styðja verkefnið og mæta í Höllina.

Allur ágóði af tónleikunum rennur beint í söfnunina og þökkum við Hallarbændum fyrir lánið á henni. Allir listamenn gefa vinnu sína og því rennur miðaverð óskipt í söfnunina.

Opnuð verður Facebooksíða fyrir tónleikana og söfnunina á allra næstu dögum og við munum verða dugleg að upplýsa Eyjafólk með gang mála. Við viljum styðja vel við vini okkar í Grindavík.

Í von um að um hægist sem allra fyrst í og við Grindavík og að íbúar hafi val um það í nánustu framtíð að byggja upp bæinn sinn, rétt eins og við Eyjamenn forðum.