Lúðrasveit Vestmannaeyja og Lúðrasveit Reykjavíkur ætla að bjóða til tónleika í Safnaðarheimilinu laugardaginn 16.mars kl.16.00.

Um er að ræða snarpa tónleika þar sem efnisskráin verður byggð upp á léttum íslenskum og breskum lögum að þessu sinni en sveitirnar héldu tónleika með svipuðu sniði í fyrra, bæði í Vestmannaeyjum og Reykjavík og var gerður góður rómur af. Reyndar svo góður að ákveðið var að endurtaka leikinn í ár.

Aðgangur er ókeypis og hefjast eins og áður sagði kl.16.00 og það verður enginn svikinn af þessari síðdegisskemmtun.