Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns verður haldinn páskavikuna 25.-27. mars nk. er það verður frí í skóla sem og á æfingum. Hér er frábært tækifæri til að brjóta upp daginn fyrir krakkana sem og efla þau í fótboltanum. Þetta kemur fram í tillkynningu frá ÍBV.

Fótboltaskólinn er fyrir krakka í 1-8 bekk. Allir þáttakendur fá gefins páskaegg. Nákvæm tímasetning verður sett upp eftir að fjöldi þáttakenda liggur fyrir. Gera má ráð fyrir að æfingar verði á milli klukkan 10-15 hvern dag. Þáttakendum verður skipt upp eftir aldri og væntanlega kyni einnig.

Stjórnandi skólans verður Óskar Elías Zoega og munu leikmenn og þjálfarar mfl karla stjórna æfingum. Það verður sérstök áhersla lögð á tækniæfingar og mun fjöld þjálfara vera á hverri æfingu til að þær skili sem mestu fyrir börnin. Skráningafrestur er til 13. mars og þau sem bóka fyrir þann tíma er TRYGGT páskaegg.

Verð er aðeins 5.000 kr.

Skráning fer fram hér