Uppsetning rafbílahleðslustöðva var til umræðu á fundi umhverfis og skipulagsráðs í vikunni sem leið. Framkvæmdastjóri Umhverfis- og framkvæmdasviðs fór yfir fyrirhugaðrar uppbyggingar rafhleðslustöðva og samstarfs sumarið 2024.

Vestmannaeyjabær hefur hlotið styrki fyrir upsetningu hleðslustöðva við stofnanir bæjarins og ákveðna ferðamannastaði. Auk þess er til skoðunar að setja upp varanlegar hraðhleðslustöðvar. Lögð eru fram drög að forgangsröðun að uppsetningu hleðslustöðva.

Samstarfsverkefni er við Orku Náttúrunnar á uppbyggingu á hverfahleðslu sem er í samræmi við umhverfis- og auðlindastefnu Vestmannaeyjabæjar. Allir mögulegir og áhugasamir samstarfsaðilar eru hvattir til að senda inn fyrirspurnir/umsóknir.

Ráðið þakkaði í niðuststöðu sinni um málið kynninguna og fól starfsfólki umhverfis- og framkvæmdasviðs framgang málsins.