Sumarið 2023 fékk ÍBV gamla Týsalinn afhentan frá Vestmannaeyja bæ til afnota. Salurinn er mjög hentugur sem þreksalur og hefur í gegnum tíðina oft gengt því hlutverki. Má þakka núverandi og fráfarandi stjórn ÍBV ásamt Vestmannaeyjabæ að þetta sé loksins orðið að veruleika segir Elías Árni Jónsson sem sinnt hefur styrktarþjálfun hjá félaginu. Elías sá einnig um að panta inn og setja upp salinn með góðri hjálp frá Georgi Ögmundssyni. 

Salurinn er ætlaður meistaraflokkum félagsins,  grunn- og framhaldsskóla akademíum ÍBV ásamt öllum iðkendum hjá félaginu sem náð hafa tilskyldum aldri sem er sextánda aldursár.   

Mikil þörf var á því að bæta aðstöðu til styrktarþjálfunar hjá félaginu. Deildir félagsins höfðu komið sér upp lágmarksaðstöðu hér og þar í húsnæði Íþróttamiðstöðvarinnar og Týsheimilinu. Þetta voru mjög litil gluggalaus rými sem hentuðu engan vegin. Því má segja að með tilkomu Gullbergs sé um mikla framför að ræða hvað varðar aðstöðu fyrir íþróttafólkið okkar að sinna styrktarþjálfun.  

 

Stórbætt aðstaða 


Elías Árni Jónsson.

Nýr salur býður upp á marga möguleika, stórbætt aðstaða fyrir íþróttafólkið okkar og bætt aðstaða fyrir þjálfara. Samhliða þessu eykst nýtingin á mannvirkinu, enda ávallt einhver í salnum á meðan hann er opinn.  

Salurinn er útbúinn öllum helstu þrektækjum sem völ er á, 5 rekkar, stangir og handlóð auk trissuvélar. Á langhlið salarins er 25 metra gervigras renningur sem nýtist vel í hopp og hraða þjálfun. Tvö tæki eru eftir en gera má ráð fyrir því að þau verði komin í lok mánaðarins. Einnig á eftir að koma nýtt hljóðkerfi og stór kennsluskjár í salinn og stórar myndir af fyrstu meisturum ÍBV karla og kvenna í knattspyrnu og handknattleik. Hér sjá menn að nokkur verkefni eru eftir og allur stuðningur er vel þeginn. Hægt er að hafa samband við Sigfús á skrifstofu ÍBV ef menn vilja leggja okkur lið. Verkefnið er sjálfstætt og ekki tengt fjáröflun deildanna á neinn hátt.   

Hlaut nafnið Gullberg 

Salurinn fékk nafnið Gullberg en það nafn er vel við hæfi þar sem að stærsti bakhjarl verkefnisins er Eyjólfur Guðjónsson á Gullberginu. Gullbergið hefði ekki orðið að veruleika nema fyrir tilstilli Eyjólfs og Björgvins Eyjólfsson, Stefáni Jónsyni og Guðmundu Bjarnadóttur sem stóðu í ströngu við að afla fjármagns, leita styrkja, ferja tæki yfir til Eyja og að fá sjálfboðaliða til að græja salinn til að hægt væri að setja tækin upp og gera hann huggulegan.  

Minnir á góða umgengni 

Það eru tvö atriði sem vert er að minnast á en það er aðgengi og umgengni. Nokkuð hefur borið á því að ungmenni séu að fara inn í salinn til dæmis um helgar til að leika sér. Þreksalur er ekki leiksvæði og bara tímaspursmál hvenær einhver slasast við það. Það vantar aðgangsstýringar þannig að þeir sem ekki eiga erindi í salinn komist ekki þangað inn. Svo er það almenn umgengni en á þeim stutta tíma sem hann hefur verði í notkun er strax farið að bera á því að fólk gangi ekki frá og noti ekki ruslatunnur. Við þjálfararnir eru að reyna breyta því en allir þurfa að hjálpast að svo að hann nýtist félaginu vel um langa tíð, segir Elías að lokum. 

 

Heimsklassa aðstaða 


Óskar Elías Zoega Óskarsson.

Óskar Elías Zoega Óskarsson knattspyrnuþjálfari sér í dag um styrktar- og tækni æfingar hjá ÍBV akademíunni ásamt bóklegum tímum.  

Árið 2019 byrjaði Erlingur Richardsson með styrktar- og tækniæfingar fyrir 9.og10. bekk þegar ÍBV hóf samstarf með Grunnskóla Vestmannaeyja. Í fyrstu voru þeir Óskar og Magnús Karl, Erlingi innan handar. Var það í fyrsta skipti þar sem nemendur í 9. og 10. bekk fengu kennslu í styktaræfingum sem kenndar voru tvisvar í viku allt skólaárið, ásamt tækniæfingum í fótbolta- og handbolta. “ Í dag er þetta eini skólinn á landinu sem býður upp á svona reglulega eftirfylgni á þessu sviði frá þessum aldri’.“ Krökkunum er svo fylgt eftir út framhaldskólann ef þau halda áfram í akademíunni. 

Óskar segir að akademíunni hafi alltaf verið tvískipt en með nýju aðstöðunni geta allir æft saman í Týsheimilinu. „Allir flokkar félagsins geta nú nýtt aðstöðuna sem er heimsklassa og myndar það heilbrigðari og sterkari kúltúr innan félagsins”. 

Gæðin í starfi hafa aukist 


Bergvin Haraldsson.

Bergvin Haraldsson er íþróttafræðingur að mennt. Í dag er hann yfirþjálfari hjá yngri flokkum í handbolta og þjálfari hjá félaginu, þjálfari hjá Ægi íþróttafélagi og kennari í Grunnskóla Vestmannaeyja. Einnig hefur hann unnið sem vallarstjóri hjá félaginu í sex ár.  

Bergvin sinnir mikið af daglegum verkefnum í Týsheimilinu, sem og fundum og styrktarþjálfun hjá félaginu. Hann segir breytingarnar á salnum frábærar. „Við erum að fara úr því að hafa mjög takmarkaða aðstöðu yfir í eina af flottustu aðstöðu landsins. Nú geta fleiri æft í hverjum tíma, aðstaðan er frábær og hægt er að sinna fleiri iðkendum í einu. Gæðin í starfi hafa aukist og meiri samgangur sé á milli íþróttadeilda.“ 

Að lokum segir hann að þetta muni hafa gríðarlega jákvæða þróun í þeirra starfi, það séu fleiri sem sækjast eftir þessu og sé hægt er að sinna fleirum í einu. „Jafnvel það jákvæðasta í þessu sé að öll starfsemin geti verið undir sama þaki.“