Veðrið gengur niður

Mikið hvassviðri gekk yfir Eyjar í morgun en nú er veðrið að ganga niður eftir óvenju kröftugan storm. Klukkan 10:00 mældist vindhraði 38 metrar á sekúndu, mesti tíu mínútna meðalvindur fór í 41 m/s og mesta hviða mældist 48 m/s. Veðurofsinn hafði áhrif á daglegt líf í bænum. Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum og íþróttamiðstöðinni var meðal […]
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn

Vestmannaey VE landaði fullfermi í Þorlákshöfn á þriðjudag og Bergey VE landaði þar fullfermi á mánudag. Bergey landaði síðan góðum karfaafla í gær, að því er segir í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Þar er jafnframt rætt við skipstjórana. Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, var mjög sáttur við veiðina en ósáttur við veðurlagið. „Við vorum […]
Snælduvitlaust veður í Vestmannaeyjum

Í Vestmannaeyjum er snælduvitlaust veður, stórviðri af austri með snjókomu. Klukkan 10.00 mældist vindhraðinn 38 metrar á sekúndu og hitinn var 1 stig. Mesti 10 mínútna meðalvindur var 41 m/s og mesta hviða 48 m/s. Veðrið gengur hratt yfir og verða sunnan 5 metrar, 4 stiga hiti og rigning klukkan 12.00. „Viljum við góðfúslega benda ykkur á að appelsínugul […]
Bókin um ESB – Hvað er í pakkanum?

Eftir Frosta Sigurjónsson. Bókin er skrifuð af því tilefni að Íslendingar gætu fljótlega þurft að taka afstöðu til þess hvort innganga í Evrópusambandið sé skynsamleg. Hún fjallar ekki um kosti og galla aðildar Íslands að ESB en gefur þess í stað greinargóða lýsingu á uppbyggingu sambandsins, stjórnkerfi þess og þróun til dagsins í dag. Sérstaklega […]
Íþróttamiðstöðinni lokað vegna veðurs

Íþróttamiðstöðinni hefur verið lokað vegna veðurs. Bæði skólasund og íþróttir voru felld niður í morgun en nú hefur húsinu verið lokað. Samkvæmt tilkynningu frá íþróttamiðstöðinni er aðkoma gesta að austurinngangi orðin varasöm og ekki hægt að tryggja öryggi þeirra við þær aðstæður. Af þeim sökum hefur verið gripið til þess að loka tímabundið. Staðan verður […]
Úrslitakvöld Vöruhúsdeildarinnar á laugardaginn

Sigurvegari Vöruhúsdeildarinnar 2026 verður krýndur laugardaginn 28. mars upp í Höll þegar úrslitakvöld Pílufélags Vestmannaeyja fer fram. Viðburðurinn verður sögulegur fyrir umfang sitt en leikirnir verða spilaðir uppá stóra sviðinu og varpa myndavélar nærmyndum af spjaldi og leikmönnum uppá sýningartjöldin. Einnig verða leikirnir í beinni á YouTube rás Pílufélagsins. Það er því óhætt að segja […]
Hagnaður Ísfélagsins 2,8 milljarðar króna

Ísfélag hf. hagnaðist um 2,8 milljarða króna árið 2025 og jukust tekjur félagsins í 27,4 milljarða króna, samkvæmt nýbirtu ársuppgjöri. Rekstrarhagnaður nam 7,9 milljörðum króna og EBITDA var 10,1 milljarður króna, sem endurspeglar sterka afkomu félagsins á árinu. Aukningin skýrist meðal annars af háu verði á helstu afurðum, góðum makrílveiðum og sterkum rekstri frystitogarans Sólbergs. […]
Heimir mætir með Írland í umspilsleik í kvöld

Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson mætir með Írland til leiks í umspilsleik um sæti á heimsmeistaramótinu í fótbolta í kvöld. Írar mæta Tékklandi á útivelli í fyrri umspilsleiknum. Ef þeir vinna þann leik munu þeir mæta Danmörku eða Norður-Makedóníu í hreinum úrslitaleik um sæti á heimsmeistaramótinu í sumar sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og og Mexikó, […]
Minning: Einar Birgir Sigurjónsson

Góður vinur og samstarfsmaður kvaddur með þakklæti og hlýjum huga. Ég var ekki búinn að standa margar vaktir í lögreglunni þegar tengdafaðir minn, Sigurgeir Kristjánsson, fyrrverandi lögregluvarðstjóri kom í heimsókn til okkar Bubbu og spurði hvernig mér líkaði starfið í lögreglunni og með hvaða mönnum ég ynni. Þegar ég nefndi það að fyrstu vaktirnar hefðu […]