Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið

Íslandsmótinu ÍF í sveitakeppni í Boccia lauk í Vestmannaeyjum í dag. Um 100 keppendur úr 35 sveitum frá níu félögum mættu til leiks. Félögin sem tóku þátt voru: Akur, Eik, Fjörður, Gróska, ÍFR, Snerpa, Suðri, Völsungur, Þjótur og Íþróttafélagið Ægir sem var umsjónaraðili mótsins.  Íþróttafélagið Ægir – C varð í öðru sæti í 2. deild […]

Átta dagar og engin svör frá ráðherrum

Núna eru liðnir átta dagar síðan ég sendi fyrst tölvupóst á Eyjólf innviðaráðherra og Kristrúnu forsætisráðherra. Allar mínar hugleiðingar hef ég sent með tölvupósti og einnig á samfélagsmiðla þeirra, en engin svör hafa borist. Ég velti því fyrir mér hvort þeim finnist kannski gaman að lesa hugleiðingar mínar frá lífinu hér í eyjum og vilji […]

Dýpkun gekk illa í morgun

Alfsnes 06 24 IMG 5443 2

Sanddæluskipið Álfsnes hefur verið við dýpkun við Landeyjahöfn undanfarna sólarhringa. G. Pétur Matthíasson segir í samtali við Eyjafréttir í dag að aðstæður hafi verið óhagstæðar við dýpkun í Landeyjahöfn á morgunflóðinu í dag. „Dýpkunarskipið Álfsnes fór tvisvar inn í höfnina en náði ekki að dýpka mikið. Áætlað er að halda áfram dýpkun á kvöldflóði.” (meira…)

Kjarnaborun hafin í Eyjum

Kjarnaborun hófst í Vestmannaeyjum í gær og markar það upphaf verklegra rannsókna á mögulegri vegtengingu milli eyja og lands. Kjarnaborinn Karl Prins var fluttur til Eyja í liðinni viku og hefur vakið athygli íbúa og vegfarenda undanfarna daga. Um er að ræða öflugt tæki sem notað er til að sækja sýni djúpt úr jarðlögum, en […]

Höfum áhrif – Framtíðin er í okkar höndum

Ungt fólk er framtíð hvers samfélags. Það erum við, unga fólkið í dag, sem munum smám saman taka við þeim verkefnum sem sinna þarf, hvort sem er í frístundastarfi, atvinnulífi eða stjórnun bæjarfélagsins. Framtíðin mótast af því hvað við gerum og hvað við ákveðum, í dag, næstu vikur, mánuði og ár. Við þurfum því að […]

Sex hópar frá FÍV tóku þátt í vörumessu í Smáralind

Á föstudag og laugardag fór fram svokölluð vörumessa ungra frumkvöðla í Smáralind. Þar kynntu og seldu nemendur úr framhaldsskólum víðs vegar af landinu hugmyndir sínar og verkefni. En alls tóku um 620 nemendur frá 18 framhaldsskólum þátt í messunni.  Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum átti þar sex hópa sem kynntu sína nýsköpun. Nemendur lögðu mikla vinnu í […]

Spurt og svarað: Hannes Kristinn frá Sjálfstæðisflokknum

Nafn: Hannes Kristinn Sigurðsson Aldur: 41 árs Fjölskylda: Giftur Fanney Finnbogadóttur og eigum tvo drengi, Elías Agnar Hannesson (2014) Eyvar Bogi Hannesson (2021). Menntun og störf: Innkaupastjóri. Fyrri afskipti af stjórnmálum: Ég tók þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir fjórum árum og hef síðan þá setið sem aðalmaður í Framkvæmda- og hafnarráði, nú síðast sem varaformaður. […]

HSU: Gervigreind styður við myndgreiningu og bráðaþjónustu

HSU vinnur nú að innleiðingu nýrrar gervigreindarlausnar til stuðnings við vakthafandi lækna. Markmið verkefnisins er að efla ákvörðunartöku lækna og bæta þjónustu við sjúklinga, sérstaklega þegar röntgensérfræðingar eru ekki til staðar. Frá þessu er greint á vefsíðu stofnunarinnar. Þar segir enn fremur að verkefnið sé tilraunaverkefni sem unnið er í samstarfi við fyrirtækið Gleamer og […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.