Kjarnaborun hafin í Eyjum
Frá borunum á Eiðinu þar sem safnað er lykilgögnum um jarðlög fyrir mögulega gangaleið. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Kjarnaborun hófst í Vestmannaeyjum í gær og markar það upphaf verklegra rannsókna á mögulegri vegtengingu milli eyja og lands.

Kjarnaborinn Karl Prins var fluttur til Eyja í liðinni viku og hefur vakið athygli íbúa og vegfarenda undanfarna daga. Um er að ræða öflugt tæki sem notað er til að sækja sýni djúpt úr jarðlögum, en þau munu veita mikilvægar upplýsingar um berggæði og jarðfræði á fyrirhugaðri gangaleið.

Boranirnar fara nú fram á Eiðinu og er gert ráð fyrir að borað verði niður á allt að 300 metra dýpi, að því er segir á vef verkefnisins. Markmiðið er að fá skýra mynd af aðstæðum undir yfirborðinu, sem er forsenda þess að hægt sé að hanna örugg og hagkvæm jarðgöng.

Þessu tengt: Kjarnaboranir hefjast í Eyjum: „Stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa“

Áætlað er að þessi áfangi standi yfir í um það bil mánuð. Að honum loknum verður búnaðurinn fluttur yfir í Landeyjasand, þar sem rannsóknir halda áfram við bæinn Kross. Koma borsins og upphaf borana marka mikilvægan áfanga í undirbúningi verkefnisins. Niðurstöður úr borkjörnum eru einn lykilþáttur í mati á hagkvæmni og tæknilegri útfærslu mögulegra ganga milli lands og Vestmannaeyja.

Ljósmyndari Eyjafrétta tók meðfylgjandi myndir á Eiðinu í gær.

Kjarnaborinn Karl Prins er kominn til Eyja og markar upphaf verklegra rannsókna.

Nýjustu fréttir

Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu
Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.