HSU vinnur nú að innleiðingu nýrrar gervigreindarlausnar til stuðnings við vakthafandi lækna. Markmið verkefnisins er að efla ákvörðunartöku lækna og bæta þjónustu við sjúklinga, sérstaklega þegar röntgensérfræðingar eru ekki til staðar. Frá þessu er greint á vefsíðu stofnunarinnar.
Þar segir enn fremur að verkefnið sé tilraunaverkefni sem unnið er í samstarfi við fyrirtækið Gleamer og felur í sér notkun gervigreindar til aðstoðar við úrlestur röntgenmynda. Lausnin veitir tafarlausar niðurstöður sem get stutt lækna á bráðamóttöku við meðferðarákvarðanir og umönnun sjúklinga.
Árangur verkefnisins verður síðan metinn með því að bera niðurstöðum gervigreindar saman við úrlestur röntgensérfræðinga, kanna upplifun heilbrigðisstarfsfólks af notkun tækninnar ásamt því að mæla afkastagetu og skilvirkni lausnarinnar.
Úrlestur myndgreiningar getur verið áskorun á vöktum, sérstaklega á landsbyggðinni, þar sem aðgengi að röntgensérfræðingum er takmarkað. Með tilkomu gervigreindarúrlestri er hægt að stytta biðtíma og tryggja hraðari svör, sem skiptir sköpum í bráðaþjónustu.
Rannsóknir hafa sýnt að gervigreindarlausnir í myndgreiningu geta greint bráðatilfelli með mikilli næmni og nákvæmni. Þrátt fyrir það halda röntgensérfræðingar áfram að lesa úr öllum myndum, en gervigreindin nýtist sem viðbótarstuðningur fyrir lækna, sérstaklega utan hefðbundins vinnutíma.
Gervigreind í myndgreiningu er hluti af hraðri tækniþróun sem opnar ný tækifæri fyrir heilbrigðisþjónustu, sérstaklega á landsbyggðinni. Með aukinni nákvæmni, hraða og sjálfvirkni getur tæknin aukið aðgengi að sérfræðiþjónustu, dregið úr álagi á röntgensérfræðingum og bætt þjónustu og öryggi sjúklinga.
„Þessi lausn skiptir sérstaklega miklu máli fyrir heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni þar sem oft er skortur á sérfræðiþjónustu utan dagvinnutíma. Með þessu móti tryggjum við aðgengi að sérfræðiþekkingu sem hjálpar okkur að veita mikilvæga þjónustu óháð staðsetningu. Þetta er jafnframt skýrt dæmi um hvernig ný tækni getur haft raunveruleg áhrif á daglega þjónustu við sjúklinga og stutt við fagfólk í krefjandi aðstæðum“, segir Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU.
Gervigreind er ekki ætlað að koma í stað sérfræðinga heldur styðja við þá. Samspil gervigreindar og sérfræðiþekkingar mun gegna lykilhlutverki í framtíðarlausnum þar sem markmiðið er að tryggja bestu mögulegu niðurstöðu fyrir sjúklinga.
HSU stendur því á tímamótum í nýtingu tækninnar, þar sem nýjar lausnir í myndgreiningu geta haft veruleg áhrif á gæði og aðgengi að heilbrigðisþjónustu til framtíðar.