Höfum áhrif - Framtíðin er í okkar höndum
Guðbjörg Sól Sindradóttir

Aðsend grein

Guðbjörg Sól Sindradóttir

Ungt fólk er framtíð hvers samfélags. Það erum við, unga fólkið í dag, sem munum smám saman taka við þeim verkefnum sem sinna þarf, hvort sem er í frístundastarfi, atvinnulífi eða stjórnun bæjarfélagsins. Framtíðin mótast af því hvað við gerum og hvað við ákveðum, í dag, næstu vikur, mánuði og ár. Við þurfum því að spyrja okkur sjálf hvernig við viljum að samfélag okkar mótist og hvernig við getum haft áhrif á þá mótun.

Höfum áhrif á mótun samfélagsins

Við höfum lítil áhrif ef  við sitjum hjá og tökum ekki þátt en getum líka haft mikil áhrif með því að vera þátttakendur í stjórnmálum. Ég vil hafa áhrif á það hvernig samfélagið hér í Eyjum þróast á næstu árum og þess vegna ákvað ég að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Ég er mjög ánægð með þann árangur sem ég náði og það traust sem mér var sýnt með því að velja mig í 9. sæti listans, sem þýðir að ef við sjálfstæðismenn náum markmiði okkar, hreinum meirihluta í bæjarstjórn, verð ég varabæjarfulltrúi á næsta kjörtímabili. Ef svo verður fæ ég tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á ákvarðanir um mál sem skipta okkur öll máli, bæði núna og til framtíðar.

Tækifærin eru til staðar en tryggja þarf öflugu grunnþjónustu

Vestmannaeyjar eru frábær staður að búa á og við þurfum að vinna að því áfram að hér sé gott fyrir ungt fólk að búa og hér sé tryggð sem best þjónusta við fjölskyldufólk en á sama tíma þarf atvinnulífið að þróast og vaxa því allt er auðvitað undir því komið að atvinna sé næg. Hér þarf áfram nýsköpun og kröftugt atvinnulíf til að tækifæri skapist fyrir fólk að fá atvinnu við sitt hæfi að loknu námi. Atvinnutækifærum hefur fjölgað hér síðustu ár og uppbygging fyrirtækis eins og Laxeyjar skapar ný atvinnutækifæri fyrir menntað fólk hér í Eyjum.

Hér þarf líka að tryggja góða grunnþjónustu, öfluga leik- og grunnskóla, heilbrigðisþjónustan þarf að fullnægja kröfum nútímans og samgöngur verða að komast í betra horf.

Atkvæði ungra kjósenda geta ráðið úrslitum

Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt það í verki að hann gefur ungu fólki tækifæri og raddir þess fá að heyrast og hafa áhrif. Ég  hef nú tækifæri á að láta rödd mína heyrast á vettvangi bæjarmála og ungir kjósendur geta styrkt rödd mína á því sviði með því að gefa Sjálfstæðisflokknum atkvæði sitt í bæjarstjórnarkosningunum 16. maí nk.

Nýtum kosningaréttinn, setjum X við D, og höfum þannig áhrif á hvernig framtíðin verður mótuð hér í Eyjum.

 

Guðbjörg Sól Sindradóttir

Höfundur er í 9. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.

 

Nýjustu fréttir

Kjarnaborun hafin í Eyjum
Höfum áhrif – Framtíðin er í okkar höndum
Sex hópar frá FÍV tóku þátt í vörumessu í Smáralind
Spurt og svarað: Hannes Kristinn frá Sjálfstæðisflokknum
HSU: Gervigreind styður við myndgreiningu og bráðaþjónustu
ÍBV kom til baka og vann frábæran sigur gegn Haukum
Íslandsmótið í Boccia hófst í Eyjum í dag
Hvar er grafskipið? Hvar eru upplýsingarnar?

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.