Íslendingur vann 336 milljónir!

Heppinn Íslendingur, sem keypti sér miða í N1 v/Austurveg á Selfossi, var meðal þeirra tíu sem deila með sér 2. vinningi í EuroJackpot. Fær hver vinningshafi rúmlega 336 milljónir króna í sinn hlut. Hinir miðarnir voru keyptir í Finnlandi, Slóveníu, tveir í Svíþjóð og fimm í Þýskalandi. Þetta segir í frétt á vef Íslenskrar Getspár. […]
Stefnir á meistarann eftir sveinspróf í veiðarfæratækni

Tindur Snær Sigurbjörnsson hefur lokið sveinsprófi í veiðarfæratækni, fagi sem fáir hafa lagt stund á undanfarin ár. Í viðtali á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar segir hann starfsgreinina bjóða upp á endalaus tækifæri og að nánast enginn vinnudagur sé eins. Tindur hefur sameinað nám og störf hjá Vinnslustöðinni undanfarin ár. Hann hefur verið á námsstyrk hjá fyrirtækinu frá […]
Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir

Lottópotturinn síðastliðinn laugardag var sexfaldur og fyrsti vinningur nam rúmum 130,9 milljónum króna. Það var rúmlega áttræð kona í Reykjavík sem reyndist vera hinn heppni vinningshafi, en hún hafði keypt miðann sinn á lotto.is. Í tilkynningu frá Getspá segir að vinningshafinn hafi verið nývaknaður á mánudagsmorgni þegar gleðisímtalið barst. Hún hafði enga hugmynd um að […]
Vísnagátur eftir Sigurgeir

Á Goslokahátíð í sumar kemur út ný bók eftir Sigurgeir Jónsson í Gvendarhúsi og er þetta 15. bókin sem út kemur eftir hann. Líkt og f lestar fyrri bækur hans, sem hafa að stórum hluta fjallað um mannlíf og hætti í Vestmannaeyjum, er þessi með sömu tengsl. Bókin heitir Vísnagátur úr Vestmannaeyjum og hefur inni […]
Hlustaðu á þjóðhátíðarlagið 2026

Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör sjá um þjóðhátíðarlagið í ár og var lagið frumflutt í beinni útsendingu í morgun á FM957. Að þeirra sögn vildu þau fanga þá einstöku tilfinningu sem myndast þegar fólk er á leiðinni í dalinn á þjóðhátíð. Þau segjast strax hafa verið sammála um í hvaða átt þau vildu fara með […]
Verkefnastaðan hefur aldrei verið betri

Staða Þekkingarseturs Vestmannaeyja er sterk um þessar mundir að sögn Harðar Baldvinssonar, framkvæmdastjóra setursins. Hann segir bæði fjárhag og verkefnastöðu hafa tekið miklum framförum á undanförnum árum og sér fram á áframhaldandi vöxt í starfseminni. „Staða Þekkingarsetursins er mjög sterk. Fjárhagsstaðan er mjög sterk og verkefnastaðan hefur aldrei verið betri,“ segir Hörður í samtali við […]