Stefnir á meistarann eftir sveinspróf í veiðarfæratækni
Tindur Snær bjó til líkan af trolli í náminu. Ljósmynd/vsv.is

Tindur Snær Sigurbjörnsson hefur lokið sveinsprófi í veiðarfæratækni, fagi sem fáir hafa lagt stund á undanfarin ár. Í viðtali á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar segir hann starfsgreinina bjóða upp á endalaus tækifæri og að nánast enginn vinnudagur sé eins.

Tindur hefur sameinað nám og störf hjá Vinnslustöðinni undanfarin ár. Hann hefur verið á námsstyrk hjá fyrirtækinu frá árinu 2024 og starfað samhliða námi sínu á netaverkstæði VSV, auk þess að stökkva reglulega á sjó þegar mannskap hefur vantað. Hann segir áhugann á faginu og þau tækifæri sem það býður upp á hafa ráðið miklu þegar kom að námsvalinu.

„Það var vöntun á fólki í þessa iðngrein og ég sá tækifæri. Mér hefur líka alltaf fundist þessi vinna og allt í kringum hana mjög skemmtilegt,“ segir hann.

Meiri stærðfræði en margir halda

Aðspurður hvað hafi komið sér mest á óvart í náminu nefnir Tindur að það sé töluvert meira á bak við fagið en margir átta sig á. „Það kom mér á óvart hvað það er mikil stærðfræði í þessu og hvað þarf að spá í hverjum einasta þætti í veiðarfærunum. Allt virkar ef rétt er gert, en ef eitt er vitlaust þá virkar ekkert.“

Námið hefur farið fram með vinnu en hann segir fyrirkomulagið hafa hentað vel. „Ég hef bæði verið til sjós og á netaverkstæðinu með þessu námi. Það góða er að kennslan er í fjarnámi hjá Fisktækniskólanum þannig að kvöld og helgar hafa nýst í námið.“

Hagnýt þekking og reynsla af sjónum

Á netaverkstæðinu hefur Tindur unnið með Jóa og Sigurbirni, föður sínum, og segir þar hafa safnast mikil reynsla og þekking. „Ég lærði hagnýtni hjá þeim upp á nýjan tein og alls konar trix í faginu sem maður hafði ekki lært áður.“

Hann segir reynsluna af sjónum einnig hafa hjálpað mikið. „Mér finnst best að sjá hvernig hlutirnir virka og hvað hver einn hlutur gerir. Þá er líka auðveldara að sjá fyrir sér hvað má bæta í vinnunni á sjó.“

„Nánast aldrei sami vinnudagurinn“

Það sem Tindur segir skemmtilegast við fagið er fjölbreytnin. „Þetta er svo viðtæk vinna og það er alltaf eitthvað nýtt á nálinni. Það er nánast aldrei sami vinnudagurinn.“

Framtíðarsýnin er einnig skýr. „Ég ætla að halda áfram að fræða mig tengt útgerð og fara í meistarann í netagerð.“ Og þegar hann er spurður hvort hann myndi mæla með náminu við ungt fólk stendur ekki á svarinu: „Ekki spurning. Það eru endalaus tækifæri í þessu starfi – og þá ekki síst ef menn vilja fara út fyrir landsteinana.“

Að lokum segist Tindur vilja koma á framfæri þakklæti til þeirra sem hafa stutt hann á leiðinni. „Ég vil þakka þeim sem hafa aðstoðað mig – þeir vita hverjir þeir eru.“

Viðtalið á vef Vinnslustöðvarinnar.

Nýjustu fréttir

Stefnir á meistarann eftir sveinspróf í veiðarfæratækni
Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir
Vísnagátur eftir Sigurgeir
Hlustaðu á þjóðhátíðarlagið 2026
Verkefnastaðan hefur aldrei verið betri
Eyjamenn komu til baka og náðu í stig gegn ÍA
Óskuðu eftir Baldri – fengu neitun
Petar Jokanovic áfram í herbúðum ÍBV
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.