Vísnagátur eftir Sigurgeir
Sigurgeir Jónsson. Þorlaugargerði er einn af unaðsreitum á Heimaey og þar ólst Sigurgeir upp og er kenndur við.
Omar Betri
Ómar
Garðarsson

Á Goslokahátíð í sumar kemur út ný bók eftir Sigurgeir Jónsson í Gvendarhúsi og er þetta 15. bókin sem út kemur eftir hann. Líkt og f lestar fyrri bækur hans, sem hafa að stórum hluta fjallað um mannlíf og hætti í Vestmannaeyjum, er þessi með sömu tengsl. Bókin heitir Vísnagátur úr Vestmannaeyjum og hefur inni að halda um 150 vísnagátur, sem flestar tengjast Vestmannaeyjum. Eins og fyrr segir kemur bókin út á Goslokahátíðinni og verður sérstök kynning á henni í Safnahúsi þar sem einnig verður hægt að fá hana áritaða.

En hvers konar bók er þetta? Sigurgeir segir að þótt hann hafi stundað vísnagerð frá unga aldri, hafi sá þáttur fram til þessa lítt komið fram í bókum hans. „Svo gerðist það fyrir tveimur eða þremur árum, að ég fékk aukinn áhuga á þessu formi. Átti nokkrar vísnagátur frá fyrri árum og ákvað að bæta í þann forða með efni sem tengdist Vestmannaeyjum. Eldri gáturnar eru svona meira af gamla skólanum, á að finna lausnina í efni gátunnar en þær nýrri eru byggðar á annarri aðferð, þar sem á að lesa lausnina beint úr textanum svipað og er í nútímakrossgátum og hentar mörgum vel,“ segir Sigurgeir.

Þessar gátur fjalla nær allar um Vestmannaeyjar og á að finna út úr þeim örnefni, eyjar, sker og dranga, þekkta staði og húsanöfn svo nokkuð sé nefnt.. Tökum eina gátu sem dæmi þar sem finna á nafn á eyju í Vestmannaeyjum: Gestrisinn ég einkar er, oft ég skenki á könnuna. Humar líka elda hér, helli seyði á pönnuna. Hér er lausnin Hellisey, og finnst í upphafi fjórðu línu vísunnar. Sigurgeir segist hafa fengið áhuga fyrir þessu í sambandi við að leysa krossgátur Moggans um árabil sem eru heldur strembnari en gengur og gerist og þurfi oft að lesa beint í textann. „Svo datt mér í hug hvort ekki væri skemmtilegt að koma þessu Þorlaugargerði er einn af unaðsreitum á Heimaey og þar ólst Sigurgeir upp og er kenndur við. inn í vísnagátur líka og held að ég sé frumkvöðull í þessari ljóðagerð hér á landi,“ segir Sigurgeir og bætir við að kynning á bókinni hafi staðið í nokkurn tíma og margir sem bíði spenntir.

„En ég er hvergi nærri hættur og síðustu vikur og mánuði er ég búinn að setja saman fullt af nýjum gátum sem flestar tengjast Vestmannaeyjum líka. Til að mynda setti ég saman gátur sem fjalla um byggðina fyrir ofan hraun og á að finna bæjarnafn í hverri gátu. Þær hafa vakið fögnuð hér í nágrenninu. Og svo datt mér í hug um daginn að setja saman vísnagátur um fjóra matsölustaði í Vestmannaeyjum, sem m.a. eiga það sameiginlegt að styðja við þessa útgáfu. Og eigendur þessara staða voru hinir ánægðustu með árangurinn, töldu þetta hina bestu auglýsingu fyrir sig auk þess sem þetta myndi auka sölu á bókinni,“ sagði Sigurgeir sem sagðist líka vera farinn að hlakka til goslokanna. Hann hefði fengið einkar jákvæð viðbrögð við þessari útgáfu og sagði að margir biðu fullir tilhlökkunar að spreyta sig á vísnagátunum. Og Sigurgeir veitti okkur góðfúslegt leyfi sitt til að birta hér bæði vísnagáturnar um sveitina fyrir ofan hraun sem og gáturnar um matsölustaðina sem koma hér.

1

Þau Jónína og Otti áður sátu

og undu lífinu við Brekastíg.

En nú má finna í nöfnum þeirra gátu

um nafntogaðan stað við Bárustíg.

2

Áðan vildi mat mér fá,

Mjög svo vel allt það gekk.

Umfram allt ég ætla að skrá

Indælismatinn sem ég fékk.

3.

Gola að austan ginnir mig

Góðan mat að panta.

Frábær matur, fjölmörg stig,

Flott á alla kanta.

4.

Indæll staður, indæl stund,

Ötull vinnuflokkurinn.

Svo bið eg um að nautalund

Hreinsi kaldi kokkurinn.

(Svör: 1. Gott, 2. Kráin, 3. Tanginn, 4. Einsi kaldi)

Nýjustu fréttir

Vísnagátur eftir Sigurgeir
Hlustaðu á þjóðhátíðarlagið 2026
Verkefnastaðan hefur aldrei verið betri
Eyjamenn komu til baka og náðu í stig gegn ÍA
Óskuðu eftir Baldri – fengu neitun
Petar Jokanovic áfram í herbúðum ÍBV
Rjúfum vítahringinn: Hringferð SA í Akóges-salnum
Þakklæti efst í huga
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.