Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir
Brást við af mikilli ró
lotto
Mynd/samsett

Lottópotturinn síðastliðinn laugardag var sexfaldur og fyrsti vinningur nam rúmum 130,9 milljónum króna. Það var rúmlega áttræð kona í Reykjavík sem reyndist vera hinn heppni vinningshafi, en hún hafði keypt miðann sinn á lotto.is.

Í tilkynningu frá Getspá segir að vinningshafinn hafi verið nývaknaður á mánudagsmorgni þegar gleðisímtalið barst. Hún hafði enga hugmynd um að hún væri með stóra vinninginn og tók fréttunum af slíkri yfirvegun að fyrstu viðbrögðin voru einfaldlega: „Já, hérna.“

Eftir símtalið brá þó öðru við þegar hún hringdi í son sinn og sagði honum tíðindin. Hann brást við með mun meiri tilþrifum og varð, að hennar sögn, „hoppandi glaður“.

Konan, sem býr miðsvæðis í Reykjavík, lét vinninginn ekki hafa teljandi áhrif á daglegt líf sitt. Með bros á vör nýtti hún góða veðrið í vikunni til að rölta niður á skrifstofu Íslenskrar getspár og ganga frá undirritun vinningsins.

Aðspurð um framtíðarplön sagði hún að henni hefur alltaf þótt mikilvægt að láta gott af sér leiða og því væri líklegt að vinningurinn kæmi hennar nánustu einnig til góða. Þá sagðist hún lengi hafa dreymt um að ferðast til Asíu en hingað til hefði kostnaður staðið í vegi og nú hefur hún loksins tækifæri til að láta þann draum rætast.

Í tilkynningunni er vinningshafanum óskað innilega til hamingju og um leið er þakkað fyrir veittan stuðning, sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

Nýjustu fréttir

Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir
Vísnagátur eftir Sigurgeir
Hlustaðu á þjóðhátíðarlagið 2026
Verkefnastaðan hefur aldrei verið betri
Eyjamenn komu til baka og náðu í stig gegn ÍA
Óskuðu eftir Baldri – fengu neitun
Petar Jokanovic áfram í herbúðum ÍBV
Rjúfum vítahringinn: Hringferð SA í Akóges-salnum
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.