Íslendingur vann 336 milljónir!

Heppinn Íslendingur, sem keypti sér miða í N1 v/Austurveg á Selfossi, var meðal þeirra tíu sem deila með sér 2. vinningi í EuroJackpot. Fær hver vinningshafi rúmlega 336 milljónir króna í sinn hlut. Hinir miðarnir voru keyptir í Finnlandi, Slóveníu, tveir í Svíþjóð og fimm í Þýskalandi. Þetta segir í frétt á vef Íslenskrar Getspár.

Þar segir jafnframt að níu vinningshafar hafi verið með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 35 milljónir í vasann. Fimm miðanna voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Finnlandi, einn á Spáni og einn í Tékklandi. Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni.

Enginn var með 1. vinning í Jóker en 5 voru með 2. vinning og fær hver 125.000 kr. Einn miði var keyptur í Lottó appinu og fjórir á lotto.is.

Nýjustu fréttir

Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi
Fimmti flokkur drengja ÍBV tók þátt í N1 mótinu á Akureyri
Skipaumferð setti svip á höfnina í dag
Eyjasundinu flýtt vegna veðurs
Þrjú álitaefni réðu úrslitum í vatnslagnarmálinu
ÍBV vann Val í Goslokaleik
Svipmyndir frá líflegum laugardegi á Goslokahátíð
Goslok: dagskrá sunnudags
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.