Stór ágústmánuður að baki hjá Herjólfi

Ágústmánuður var með þeim stærri í flutningum Herjólfs, þrátt fyrir að dagarnir fyrir Þjóðhátíð, sem alla jafna eru meðal stærstu flutningsdaga ársins, hafi að þessu sinni fallið í júlí. „Þetta var mjög góður mánuður hjá okkur,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs. Alls fóru 85.564 farþegar með Herjólfi í ágúst, sem er heldur meira en […]

Sænski sendiherrann genginn til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja

Nýskipaður sendiherra Svíþjóðar á Íslandi, Jan Lundin, er genginn til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja. Fyrir eru þrír Svíar í félaginu: stórmeistararnir Nils Grandelius og Slavko Cicak og FIDE-meistarinn Anders Larsson. Jan er fæddur árið 1963 og var það Einvígi aldarinnar í Reykjavík árið 1972 sem kveikti skákáhuga hans. Þegar hann hóf nám í menntaskóla lagði […]

Fyrsta Aglow-samvera haustsins í kvöld

Fyrsta Aglow-samvera haustsins verður í Safnaðarheimili Landakirkju í kvöld, miðvikudaginn 2. september, kl. 19.30. Guðrún Erlingsdóttir verður gestur kvöldsins, en hún bjó um árabil í Vestmannaeyjum og starfaði með Aglow. Guðrún leikur á gítar og samdi mörg lög og texta á þeim tíma. Eftir að hún flutti frá Eyjum hélt hún áfram að sækja Aglow-samverur […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.