Sænski sendiherrann genginn til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja
Jan Lundin er öflugur skákmaður og hefur hæst náð um 2.400 elóstigum
Jan Lundin, nýskipaður sendiherra Svíþjóðar á Íslandi, er genginn til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja.

Nýskipaður sendiherra Svíþjóðar á Íslandi, Jan Lundin, er genginn til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja. Fyrir eru þrír Svíar í félaginu: stórmeistararnir Nils Grandelius og Slavko Cicak og FIDE-meistarinn Anders Larsson.

Jan er fæddur árið 1963 og var það Einvígi aldarinnar í Reykjavík árið 1972 sem kveikti skákáhuga hans. Þegar hann hóf nám í menntaskóla lagði hann meðal annars stund á rússnesku – einmitt til þess að verða betri skákmaður.

Jan er með háskólapróf í slavneskum tungumálum, Austur-Evrópufræðum og hagfræði frá Háskólanum í Uppsölum auk meistaraprófs í lögfræði frá Háskólanum í Stokkhólmi.

Hann á að baki áratugaferil í sænsku utanríkisþjónustunni. Meðal annars var hann sendiherra Svíþjóðar í Belgrad, gagnvart Serbíu og Svartfjallalandi, á árunum 2016 til 2021. Hann tók við embætti sendiherra Svíþjóðar á Íslandi í ágúst síðastliðnum.

Jan er með 2.190 elóstig en hefur hæst náð um 2.400 stigum. Helsta afrek hans á skáksviðinu er líklega stórmeistaraáfangi sem hann náði í Evrópukeppni félagsliða í Rogaška Slatina í Slóveníu árið 2011.

Ljóst er að Taflfélag Vestmannaeyja fær öflugan skákmann til liðs við sig, sem mun styrkja sveit félagsins í úrvalsdeildinni á komandi keppnistímabili. Í tilkynningu frá félaginu býður Taflfélag Vestmannaeyja Jan velkominn í félagið.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.