Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn
Treyjudagurinn verður haldinn n.k. föstudag.

Föstudaginn 4. september verður svokallaður treyjudagur haldinn í fyrsta sinn á Íslandi til stuðnings börnum með krabbamein. Á treyjudeginum klæðist fólk sinni uppáhalds íþrótta treyju til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Dagurinn hefur verið haldinn í Danmörku, Svíþjóð og Noregi um árabil.

Að því tilefni eru nemendur hvattir til að mæta í sinni uppáhalds treyju í skólann og á æfingar.

Styrktarfélag barna með krabbamein stendur að deginum, en félagið styður börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra með fjölbreyttum hætti.

Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn með krabbamein í hverjum mánuði. Með Treyjudeginum er fólk hvatt til að sýna samstöðu á einfaldan og sýnilegan hátt, óháð því hvaða liði það heldur með.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.