Skammt í farþegametið í komu skemmtiferðaskipa
Alls hafa 141 skip komið til Vestmannaeyjahafnar frá maí til ágúst, fyrir utan fiskiskip og Herjólf
Lettbatur Skemmtiferdaskip Tvö
Líf í höfninni. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Alls hafa 82 skemmtiferðaskip komið til Vestmannaeyja það sem af er sumri með rúmlega 33 þúsund farþega. Aðeins vantar 146 farþega til að jafna metið frá árinu 2023. Þetta kemur fram í samantekt Vestmannaeyjabæjar.

Met var sett árið 2023 þegar 97 skemmtiferðaskip komu til Vestmannaeyja með samtals 33.214 farþega.

Von er á þremur skemmtiferðaskipum til viðbótar í september, dagana 19., 22. og 25. september. Að því loknu lýkur skemmtiferðaskipavertíðinni í Vestmannaeyjum árið 2026.

Auk skemmtiferðaskipanna hafa eftirtalin skip komið til Vestmannaeyjahafnar frá maí til ágúst:

  • 28 gámaskip
  • Sex olíuskip
  • Eitt saltskip
  • Þrjú mjölskip
  • Sjö fóðurskip
  • Tvö sandskip
  • Tvö lýsisskip
  • Sjö brunnbátar
  • Þrjú önnur skip

Skipakomurnar voru því samtals 141 á tímabilinu. Þar eru komur fiskiskipa og Herjólfs ekki taldar með.

„Starfsmenn hafnarinnar og atvinnulífið allt á hrós skilið fyrir mikil afköst sumarið 2026,“ segir í samantekt Vestmannaeyjabæjar.

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.