Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðurlandi

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna suðaustanhvassviðris á Suðurlandi. Viðvörunin gildir frá klukkan 05:00 til 09:00 í fyrramálið, mánudaginn 21. september. Einnig hefur verið gefin út gul viðvörun á Faxaflóa af sömu ástæðu. Spáð er suðaustan 13–23 metrum á sekúndu og vindhviðum allt að 30–35 metrum á sekúndu undir Eyjafjöllum og austur að […]

ÍBV þurfti að sætta sig við jafntefli gegn Val

Karlalið ÍBV tók á móti Val í 2. umferð neðri hluta Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli eftir að Valsmenn jöfnuðu metin á lokamínútu leiksins. Fyrri hálfleikurinn var nokkuð rólegur og lítið um færi. ÍBV fékk þó frábært tækifæri til að komast yfir strax á 12. mínútu þegar Róbert […]

Gönguleið austur á nýja hrauni

Halldór B. Halldórsson hefur sent Eyjafréttum nýtt myndband sem nefnist Gönguleið. Myndbandið er tekið austur á nýja hrauni og þar blandar Halldór saman skemmtilegum drónamyndum og upptökum af jörðu niðri. Útkoman gefur áhorfendum fallega sýn á gönguleiðina og hið sérstæða landslag á svæðinu í blíðviðrinu sem leikið hefur við Eyjamenn það sem af er degi. […]

Ákvörðun um höfn tekin klukkan sex í fyrramálið

Ákvörðun um hvort Herjólfur sigli til Landeyjahafnar eða Þorlákshafnar mánudaginn 21. september verður tekin klukkan 06:00 í fyrramálið, þegar nýjasta ölduspá liggur fyrir. Brottför verður frá Vestmannaeyjum klukkan 07:00 og frá annaðhvort Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn klukkan 10:45. Ferðir klukkan 08:15 og 09:30 falla niður, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Þar segir jafnframt að fulltrúar […]

Sjaldheyrðar Eyjaperlur fengu að hljóma í Eldheimum

Góð mæting var á útgáfutónleika alþýðutónlistarhópsins Vina og vandamanna í Eldheimum síðdegis í gær. Þar ríkti notaleg stemning og gestir fengu að heyra sjaldheyrðar perlur úr tónlistarsögu Vestmannaeyja ásamt þekktari Eyjalögum sem margir tóku undir í. Uppistaðan á tónleikunum voru lög af nýútkominni plötu hópsins, Hve dátt er hér…, en þar er meðal annars að […]

Þjóðhátíðarlögin ómuðu á landsmóti lúðrasveita

Góð stemning ríkti á tónleikum landsmóts lúðrasveita sem haldnir voru í Hvítasunnukirkjunni í gær. Fjöldi hljóðfæraleikara kom þar saman og flutti fjölbreytta efnisskrá fyrir tónleikagesti. Landsmótið fór fram í Vestmannaeyjum dagana 18.–20. september en þema þess að þessu sinni var Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Á tónleikunum voru því eingöngu flutt þjóðhátíðarlög eða lög sem tengjast hátíðinni […]

Erna Georgsdóttir formaður goslokanefndar 2027

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur skipað sex fulltrúa í goslokanefnd fyrir árið 2027. Erna Georgsdóttir verður formaður nefndarinnar. Bæjarráð samþykkti skipan nefndarinnar samhljóða á fundi sínum á miðvikudag. Auk Ernu eiga sæti í nefndinni Magnús Bragason, Birgir Níelsen, Dóra Björk Gunnarsdóttir, Súsanna Georgsdóttir og Gígja Óskarsdóttir. Með goslokanefndinni starfa jafnframt framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Vestmannaeyjabæjar og forstöðumaður […]

Mikilvæg stig í húfi á Hásteinsvelli

Karlalið ÍBV tekur á móti Val í Bestu deild karla á Hásteinsvelli í dag. Um er að ræða aðra umferðina í neðri hluta deildarinnar. ÍBV tapaði 2:0 fyrir Stjörnunni í Garðabæ í fyrstu umferðinni eftir skiptingu, en Valur vann öruggan 4:1-sigur á Þór. ÍBV er í sjötta sæti neðri hlutans með 18 stig. Valur er […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.