Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðurlandi
Skjáskot/vedur.is

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna suðaustanhvassviðris á Suðurlandi. Viðvörunin gildir frá klukkan 05:00 til 09:00 í fyrramálið, mánudaginn 21. september. Einnig hefur verið gefin út gul viðvörun á Faxaflóa af sömu ástæðu.

Spáð er suðaustan 13–23 metrum á sekúndu og vindhviðum allt að 30–35 metrum á sekúndu undir Eyjafjöllum og austur að Mýrdal.

Veðurstofan segir aðstæður geta orðið varasamar fyrir ökutæki sem viðkvæm eru fyrir vindi. Fólk er jafnframt hvatt til að huga að lausamunum utandyra. Nánari upplýsingar má finna á vef Veðurstofu Íslands.


Þessu tengt:

Ákvörðun um höfn tekin klukkan sex í fyrramálið

Ákvörðun um hvort Herjólfur sigli til Landeyjahafnar eða Þorlákshafnar mánudaginn 21. september verður tekin klukkan 06:00 í fyrramálið, þegar nýjasta ölduspá liggur fyrir. Brottför verður frá Vestmannaeyjum klukkan 07:00 og frá annaðhvort Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn klukkan 10:45. Ferðir klukkan 08:15 og 09:30 falla niður, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Þar segir jafnframt að fulltrúar […]

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.