Ákvörðun um höfn tekin klukkan sex í fyrramálið
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Ákvörðun um hvort Herjólfur sigli til Landeyjahafnar eða Þorlákshafnar mánudaginn 21. september verður tekin klukkan 06:00 í fyrramálið, þegar nýjasta ölduspá liggur fyrir.

Brottför verður frá Vestmannaeyjum klukkan 07:00 og frá annaðhvort Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn klukkan 10:45. Ferðir klukkan 08:15 og 09:30 falla niður, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Þar segir jafnframt að fulltrúar Herjólfs muni hafa samband við farþega sem eiga bókað í þær ferðir til að færa bókanir þeirra. Herjólfur bendir jafnframt á að ölduspá næstu daga sé óhagstæð fyrir siglingar til og frá Landeyjahöfn. Verði breytingar gerðar á áætlun verða þær tilkynntar um leið og ákvörðun liggur fyrir.

Þær ferðir sem færast sjálfkrafa milli hafna eru:

  • Klukkan 07:00 og 17:00 frá Vestmannaeyjum.
  • Klukkan 10:45 og 20:45 frá Landeyjahöfn.
Ölduspáin. Skjáskot/aðsent.

Nýjustu fréttir

Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.