Halldór B. Halldórsson hefur sent Eyjafréttum nýtt myndband sem nefnist Gönguleið. Myndbandið er tekið austur á nýja hrauni og þar blandar Halldór saman skemmtilegum drónamyndum og upptökum af jörðu niðri.
Útkoman gefur áhorfendum fallega sýn á gönguleiðina og hið sérstæða landslag á svæðinu í blíðviðrinu sem leikið hefur við Eyjamenn það sem af er degi.
Myndbandið má sjá hér að neðan.