ÍBV þurfti að sætta sig við jafntefli gegn Val
Fyrirliðinn Alex Freyr Hilmarsson í baráttunni í leiknum í dag gegn Val. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV tók á móti Val í 2. umferð neðri hluta Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli eftir að Valsmenn jöfnuðu metin á lokamínútu leiksins.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð rólegur og lítið um færi. ÍBV fékk þó frábært tækifæri til að komast yfir strax á 12. mínútu þegar Róbert Elís Hlynsson fékk gott skallafæri af stuttu færi en boltinn fór framhjá markinu. Fátt markvert gerðist það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og var staðan því markalaus þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Eyjamenn hófu síðari hálfleikinn af krafti og fékk Róbert Elís Hlynsson sitt annað afbragðs skallafæri á upphafsmínútunum. Bjarki Björn átti þá frábæra sendingu inn á teiginn en skallinn frá Róberti Elísi fór framhjá markinu.

Jafnað á lokamínútunni

ÍBV hélt áfram að sækja og uppskáru loks mark tíu mínútum fyrir leikslok. Eyjamenn fengu þá aukaspyrnu á góðum stað og fyrirliðinn, Alex Freyr Hilmarsson, sendi boltann inn á teig Valsmanna. Þar stökk Mathias Edeland hæst allra og stangaði boltann í netið. Eyjamenn þar með komnir með 1-0 forystu.

Allt stefndi í mikilvægan sigur ÍBV í fallbaráttunni en á lokamínútu uppbótartímans kom sending inn á teig Eyjamanna og barst boltinn til Patricks Pedersen. Hann lagði boltann á Kristófer Dag Arnarsson sem stýrði honum í netið framhjá Ara i Haraldstovu Petersen, markvarðar ÍBV. Lokatölur leiksins því 1-1 jafntefli.

Eyjamenn sitja áfram á botninum í neðri hluta deildarinnar með 19 stig. Valur er í efsta sæti neðri hlutans með 31 stig. 

Staðan í neðri hluta Bestu deildar karla:

  1. Valur – 31 stig
  2. Stjarnan – 31 stig
  3. FH – 27 stig
  4. KA – 23 stig
  5. Þór – 21 stig
  6. ÍBV – 19 stig

 

Nýjustu fréttir

Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.