Kvörtun um stöðu ferjusamgangna fékk ekki frekari meðferð

Umboðsmaður Alþingis taldi ekki lagaskilyrði til að taka kvörtun um stöðu ferjusamgangna milli lands og Eyja til frekari meðferðar. Ábendingunni verður þó haldið til haga vegna mögulegrar athugunar að eigin frumkvæði. Umboðsmaður Alþingis lauk hinn 30. september máli vegna kvörtunar um lagalega stöðu ferjusamgangna milli Vestmannaeyja og fastalandsins. Í kvörtuninni, sem barst 27. september, var […]

Uppfært: Herjólfur siglir til Þorlákshafnar

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis í dag, fimmtudag, þar sem ófært er til Landeyjahafnar vegna veðurs og sjólags. Brottförum hefur verið flýtt um klukkustund frá því sem áður var tilkynnt. Brottför frá Vestmannaeyjum er klukkan 17:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 20:45. Aðrar ferðir dagsins falla niður. Stefnt er að siglingum samkvæmt hefðbundinni áætlun á morgun, […]

Minni makrílútflutningur vegur þungt í samdrætti septembermánaðar

VSV

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam um 33 milljörðum króna í september og dróst saman um tæp 7% frá sama mánuði í fyrra. Þrátt fyrir samdráttinn hefur verðmæti útflutnings aukist um 7% á föstu gengi fyrstu níu mánuði ársins. Þetta kemur fram í greiningu Radarsins á fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um vöruskipti í september. Þegar tekið er tillit […]

Subsea7 viðurkennir mistök við útlagningu vatnslagnar

Subsea7 hefur viðurkennt að tjón sem varð á almannavarnalögninni NSL-4 við útlagningu hennar megi rekja til mistaka við framkvæmdina. Þetta kemur fram í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar, en málið var til umfjöllunar á fundi bæjarráðs þann 6. október. Stýrihópur um vatnslagnir fundaði mánudaginn 5. október með forsvarsmönnum Subsea7, fulltrúa Verkís og lögmanni sveitarfélagsins. Þar var […]

Fermetraverð í fjölbýli í Eyjum hækkað um 81%

Miðgildi söluverðs á fermetra í fjölbýli í Vestmannaeyjum hefur farið úr 280 þúsund krónum í 507 þúsund krónur. Hækkunin er um 81%, samanborið við 43% á landinu öllu á sömu tímabilum. Þetta kemur fram í útreikningum hagtöluþjónustunnar Karp úr kaupskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, HMS. Bornir eru saman þinglýstir kaupsamningar frá apríl 2021 til mars 2022 […]

Fjölbreytt októberblað með sérblaði um Kveikjum neistann

Nýjasta vefblað Eyjafrétta er komið út, alls 37 blaðsíður að meðtöldu sérblaði um Kveikjum neistann. Viðtöl, mannlíf, menning, náttúra og íþróttir skipa sinn sess í blaðinu, þar sem meðal annars er rætt við fréttafólk með rætur í Eyjum og fólk sem nýtir fjarvinnu til að búa og starfa í Vestmannaeyjum. Með októberblaðinu fylgir viðamikið sérblað […]

Lífshagsmunir gegn græðgishagsmunum

Fyrir Seyðfirðinga snýst þetta ekki aðeins um leyfi, tonnatölur og reglugerðir. Þetta snýst um fjörðinn þeirra. Um umhverfið, atvinnulífið, samfélagið og það sem verður skilið eftir fyrir komandi kynslóðir. Þar eru lífshagsmunir fólksins sem byggir samfélagið. Á móti eru miklir fjárhagslegir hagsmunir. Fjárhagslegir hagsmunir eru í sjálfu sér eðlilegur hluti atvinnulífs. En þegar lífshagsmunir fólksins […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.