Subsea7 viðurkennir mistök við útlagningu vatnslagnar
Tjón á almannavarnalögninni NSL-4 er rakið til mistaka við útlagningu hennar :: Næstu vikur verður unnið að mati á tjóninu, að sögn formanns bæjarráðs
Skipið í Klettsvík. Mynd: Eyjafréttir/ÓPF.

Subsea7 hefur viðurkennt að tjón sem varð á almannavarnalögninni NSL-4 við útlagningu hennar megi rekja til mistaka við framkvæmdina. Þetta kemur fram í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar, en málið var til umfjöllunar á fundi bæjarráðs þann 6. október.

Stýrihópur um vatnslagnir fundaði mánudaginn 5. október með forsvarsmönnum Subsea7, fulltrúa Verkís og lögmanni sveitarfélagsins. Þar var farið yfir skýrslu Subsea7 um tjónið.

Samkvæmt frétt bæjarins kemur fram í skýrslunni að ferlar um borð hafi ekki tryggt að útlagning lagnarinnar héldist innan öryggismarka.

Unnið að mati á tjóninu

Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs, segir mjög mikilvægt að vinna málið vel.

„Sem betur fer vorum við með bestu mögulegar tryggingar vegna verkefnisins og nú fara næstu vikur í að vinna mat á tjóninu og koma verkefninu í þann farveg sem upphaflega var lagt af stað með,“ segir Eyþór í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.