Kvörtun um stöðu ferjusamgangna fékk ekki frekari meðferð
Herjólfur í innsiglingunni til Vestmannaeyja. Kvörtun um lagalega stöðu ferjusamgangna milli lands og Eyja fékk ekki frekari meðferð hjá umboðsmanni Alþingis. Eyjafréttir/TMS
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Umboðsmaður Alþingis taldi ekki lagaskilyrði til að taka kvörtun um stöðu ferjusamgangna milli lands og Eyja til frekari meðferðar. Ábendingunni verður þó haldið til haga vegna mögulegrar athugunar að eigin frumkvæði.

Umboðsmaður Alþingis lauk hinn 30. september máli vegna kvörtunar um lagalega stöðu ferjusamgangna milli Vestmannaeyja og fastalandsins. Í kvörtuninni, sem barst 27. september, var óskað eftir að staða samgangnanna yrði tekin til skoðunar.

Þar var einkum bent á að ferjusamgöngur væru eina raunhæfa vegasamband íbúa Vestmannaeyja við grunnvegakerfi landsins en nytu þó ekki sömu lagalegu stöðu og þjóðvegir.

Kvörtunin varðaði almennt lagaumhverfi

Í bréfi umboðsmanns kemur fram að kvörtun þurfi að varða ákveðna ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem beinist sérstaklega að þeim sem kvartar eða varðar hagsmuni hans eða réttindi umfram aðra.

Umboðsmaður taldi erindið fremur fela í sér almennar athugasemdir við núverandi lagaumhverfi og framkvæmd ferjusiglinga en að það varðaði einstaklingsbundna hagsmuni eða réttindi viðkomandi. Því væru ekki lagaskilyrði til frekari meðferðar þess á grundvelli kvörtunar.

Jafnframt var bent á að það væri almennt ekki á verksviði umboðsmanns að taka afstöðu til þess hvernig til hefði tekist með löggjöf Alþingis. Vísað var til álits frá 2009 þar sem lagt var til grundvallar að ferjur teldust ekki þjóðvegir í skilningi vegalaga.

Ábendingunni haldið til haga

Þótt umfjöllun um kvörtunina sé lokið tekur umboðsmaður fram að erindið verði einnig meðhöndlað sem ábending um mögulegt frumkvæðismál.

Ábendingunni verður haldið til haga og hún metin með tilliti til þess hvort tilefni sé til sérstakrar athugunar. Verði málefnið tekið til athugunar verður tilkynnt um það á vef embættisins.

Frumvarp um þjóðferjuleiðir lagt fram í sjöunda sinn

Lagaleg staða ferjuleiða er jafnframt til umfjöllunar í frumvarpi sem Karl Gauti Hjaltason og fimm aðrir þingmenn hafa lagt fram á Alþingi.

Í frumvarpinu er lagt til að svonefndum þjóðferjuleiðum verði bætt við skilgreiningu vegalaga á þjóðvegum. Þar undir falli leiðir þar sem ferja kemur í stað vegasambands um stofnveg og tengir byggðir sem umluktar eru sjó við grunnkerfi samgangna á meginlandinu.

Jafnframt er lagt til að í samgönguáætlun skuli ákveða fjárveitingu vegna kostnaðar við ferjur sem þjónusta þjóðferjuleiðir til flutnings á fólki og bifreiðum. Frumvarpið er nú lagt fram í sjöunda sinn.

Nýjustu fréttir

Kvörtun um stöðu ferjusamgangna fékk ekki frekari meðferð
Uppfært: Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Minni makrílútflutningur vegur þungt í samdrætti septembermánaðar
Subsea7 viðurkennir mistök við útlagningu vatnslagnar
Fermetraverð í fjölbýli í Eyjum hækkað um 81%
Fjölbreytt októberblað með sérblaði um Kveikjum neistann
Lífshagsmunir gegn græðgishagsmunum
Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.