Uppfært: Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Herjólfur á leið í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis í dag, fimmtudag, þar sem ófært er til Landeyjahafnar vegna veðurs og sjólags. Brottförum hefur verið flýtt um klukkustund frá því sem áður var tilkynnt.

Brottför frá Vestmannaeyjum er klukkan 17:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 20:45. Aðrar ferðir dagsins falla niður.

Stefnt er að siglingum samkvæmt hefðbundinni áætlun á morgun, föstudag, og á laugardag. Spáð er hækkandi ölduhæð þegar líður á sunnudag.

Í tilkynningu Herjólfs eru farþegar minntir á að á þessum árstíma sé alltaf hætta á færslu milli hafna. Því sé ekki æskilegt að skilja farartæki eftir í Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.

Farþegar sem hyggjast nýta gistirými ferjunnar þurfa að koma með eigin búnað.

 

Fréttin hefur verið uppfærð og fyrirsögn breytt. 

Nýjustu fréttir

Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.