Minni makrílútflutningur vegur þungt í samdrætti septembermánaðar
VSV
Vinnsla á makríl.

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam um 33 milljörðum króna í september og dróst saman um tæp 7% frá sama mánuði í fyrra. Þrátt fyrir samdráttinn hefur verðmæti útflutnings aukist um 7% á föstu gengi fyrstu níu mánuði ársins.

Þetta kemur fram í greiningu Radarsins á fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um vöruskipti í september. Þegar tekið er tillit til gengisbreytinga var samdráttur mánaðarins tæp 6%, en krónan var að jafnaði rúmlega 1% sterkari en í september í fyrra.

Makríllinn vegur þungt

Samdrátturinn skýrist fyrst og fremst af minni útflutningi á heilfrystum fiski. Útflutningsverðmæti hans nam um 5,2 milljörðum króna og dróst saman um 43% á föstu gengi milli ára.

Í greiningu Radarsins er talið að minni makrílútflutningur vegi þar þungt. Makríll stóð undir rúmlega 70% af útflutningsverðmæti heilfrysts fisks í september í fyrra. Makrílafli íslenskra skipa nam um 130 þúsund tonnum í fyrra en er aðeins um 31 þúsund tonn í ár, samhliða verulegum samdrætti í aflaheimildum.

Bráðabirgðatölurnar sýna þó aðeins skiptingu eftir grófum vinnsluflokkum og því liggur ekki enn fyrir sundurliðun eftir fisktegundum.

Aukning í mjöli og lýsi

Þróunin var jákvæðari í flestum öðrum vinnsluflokkum. Á föstu gengi jókst útflutningsverðmæti fiskimjöls um 86% milli ára í september og lýsis um rúm 21%. Aukning í söltuðum og þurrkuðum afurðum var 7% og í frystum flökum 2%.

Verðmæti í flokknum „aðrar sjávarafurðir“ jókst um 65%. Þar falla meðal annars undir loðnuhrogn, sem samkvæmt greiningunni kunna að skýra hluta aukningarinnar.

Á móti dróst útflutningsverðmæti ferskra afurða saman um 8% og rækju um 84%. Verðmæti rækjuútflutnings nam aðeins um 129 milljónum króna og hefur samkvæmt Radarnum ekki verið lægra í einum mánuði á þessari öld. Hráefnisskortur er talinn helsta skýringin.

Útflutningur fyrstu níu mánaða nam 281 milljarði

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam alls 281 milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Það er um 7% aukning á föstu gengi frá sama tímabili í fyrra.

Mest munar um rúmlega 14% aukningu í útflutningsverðmæti heilfrysts fisks, sem Rad­arinn rekur fyrst og fremst til loðnu. Verðmæti frystra flaka jókst um 6% og ferskra afurða um 5%.

Einnig jókst verðmæti útflutnings á söltuðum og þurrkuðum afurðum um 10%, lýsi um 12% og öðrum sjávarafurðum um 16%. Útflutningsverðmæti fiskimjöls dróst hins vegar saman um 2% og rækju um nær helming.

Nýjustu fréttir

Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.