Öryggi og framtíðarsýn í forgrunni

Fréttir vikunnar minna okkur á hversu margt þarf að ganga upp í eyjasamfélagi. Við treystum á öruggar samgöngur, trausta innviði og þjónustu sem heldur utan um daglegt líf. Jafnframt þarf að skapa aðstæður fyrir uppbyggingu, atvinnulíf og næstu kynslóðir. Vatnsöryggi og ábyrgð Viðurkenning Subsea7 á mistökum við útlagningu vatnslagnarinnar NSL-4 var meðal stærstu frétta vikunnar. […]
Bærinn leggur fram 432 milljónir vegna vatnslagnarinnar

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt 432 milljóna króna viðauka vegna kaupa og flutnings á vatnslögninni NSL-4. Fjárhæðin verður fjármögnuð með handbæru fé sveitarfélagsins, en bærinn telur að ríkið eigi að bera kostnaðinn. Málið var til umfjöllunar á fundi bæjarráðs þann 6. október. Viðaukinn er vegna greiðslna til Subsea7 og NOV vegna kaupa og flutnings á lögninni. […]
Herjólfur fækkar ferðum í dag

Herjólfur siglir frá Vestmannaeyjum klukkan 14:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 15:45 í dag. Stefnt er að einni ferð til viðbótar síðdegis, en aðrar ferðir falla niður. Samkvæmt nýjustu tilkynningu Herjólfs er stefnt að brottför frá Vestmannaeyjum klukkan 17:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 20:45. Verði þörf á frekari breytingum verða þær kynntar um leið og þær […]
Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden

Eyjamaðurinn Erlingur Birgir Richardsson byrjar vel sem aðalþjálfari þýska liðsins Minden en liðið vann öruggan 30-21 sigur á Ludwigshafen á útivelli í þýsku B-deildinni í handbolta í gærkvöldi. Þetta var annar sigur liðsins í jafnmörgum leikjum undir stjórn Erlings. Minden hafði mikla yfirburði í leiknum og leiddi með níu mörkum í hálfleik, 16-7. Gestirnir náðu […]
Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland vegna suðaustan storms. Viðvörunin tekur gildi klukkan 21 í kvöld, sunnudaginn 11. október, og gildir til klukkan 4 aðfaranótt mánudags. Spáð er suðaustanvindi, 18–23 metrum á sekúndu, og geta vindhviður staðbundið farið yfir 35 metra á sekúndu, meðal annars undir Eyjafjöllum. Veðurstofan varar við varasömu ferðaveðri. […]
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum

Bæjarráð Vestmannaeyja leggst eindregið gegn fyrirhugaðri sameiningu lögregluembættisins við önnur embætti. Bæjarstjóra hefur verið falið að óska eftir fundi með dómsmálaráðherra. Bæjarráð Vestmannaeyja krefst þess að fallið verði frá áformum um sameiningu lögregluembættisins í Vestmannaeyjum við önnur embætti og að sjálfstæði þess verði tryggt. Þetta kemur fram í bókun ráðsins frá fundi þess 6. október. […]