Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Faxaflóa og Suðurland. Skjáskot/vedur.is.

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland vegna suðaustan storms. Viðvörunin tekur gildi klukkan 21 í kvöld, sunnudaginn 11. október, og gildir til klukkan 4 aðfaranótt mánudags.

Spáð er suðaustanvindi, 18–23 metrum á sekúndu, og geta vindhviður staðbundið farið yfir 35 metra á sekúndu, meðal annars undir Eyjafjöllum. Veðurstofan varar við varasömu ferðaveðri.

Samkvæmt veðurspá morgunsins fer að rigna sunnanlands í kvöld. Á morgun snýst vindur til suðurs og dregur úr vindstyrk, með skúrum.

Vaxandi vindur og hækkandi ölduhæð

Herjólfur vakti athygli á því í tilkynningu í gærkvöldi að spáð væri vaxandi vindi og hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn þegar liði á sunnudaginn.

Farþegar eru hvattir til að fylgjast vel með miðlum Herjólfs og ferðast fyrr en seinna, hafi þeir tök á. Í tilkynningunni kemur fram að verði þörf á breytingum á siglingaáætlun verði þær kynntar um leið og þær liggja fyrir.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skúrir, en lengst af þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 4 til 10 stig að deginum, mildast norðaustantil.

Á miðvikudag:
Norðaustan 10-18 og rigning eða slydda, hiti 2 til 8 stig. Snýst í vaxandi norðanátt eftir hádegi með talsverðri úrkomu, líkur á stormi um kvöldið með mikilli snjókomu á Norðurlandi. Kólnar í veðri.

Á fimmtudag:
Minnkandi norðanátt og dregur úr ofankomu, en norðvestan 15-23 austanlands fram yfir hádegi. Breytileg átt 3-10 og úrkomulítið síðdegis. Hiti kringum frostmark að deginum, en að 6 stigum við suður- og vesturströndina.

Á föstudag:
Suðvestlæg átt og dálitlar skúrir eða slydduél, en bjart að mestu um landið austanvert. Hlýnar í veðri.

Á laugardag:
Útlit fyrir vaxandi sunnanátt með dálítilli vætu vestanlands.
Spá gerð: 11.10.2026 08:47. Gildir til: 18.10.2026 12:00.

Nánar um veðrið.

Nýjustu fréttir

Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.