Herjólfur fækkar ferðum í dag
Herjólfur í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Herjólfur siglir frá Vestmannaeyjum klukkan 14:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 15:45 í dag. Stefnt er að einni ferð til viðbótar síðdegis, en aðrar ferðir falla niður.

Samkvæmt nýjustu tilkynningu Herjólfs er stefnt að brottför frá Vestmannaeyjum klukkan 17:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 20:45.

Verði þörf á frekari breytingum verða þær kynntar um leið og þær liggja fyrir. Tilkynning um siglingar á morgun, mánudaginn 12. október, verður gefin út klukkan 6 í fyrramálið.

Gul viðvörun tekur gildi í kvöld

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland vegna suðaustan storms. Hún gildir frá klukkan 21 í kvöld til klukkan 4 í nótt.

Spáð er suðaustanvindi, 18–23 metrum á sekúndu, og geta vindhviður staðbundið farið yfir 35 metra á sekúndu, meðal annars undir Eyjafjöllum. Varasamt ferðaveður er á svæðinu.

Herjólfur hafði í gærkvöldi varað við vaxandi vindi og hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn þegar liði á daginn. Farþegar eru hvattir til að fylgjast vel með tilkynningum félagsins.

Nýjustu fréttir

Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.