Bærinn leggur fram 432 milljónir vegna vatnslagnarinnar
Vatnslögnin tekin á land í Eyjum. Mynd: Eyjafréttir/ÓPF.

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt 432 milljóna króna viðauka vegna kaupa og flutnings á vatnslögninni NSL-4. Fjárhæðin verður fjármögnuð með handbæru fé sveitarfélagsins, en bærinn telur að ríkið eigi að bera kostnaðinn.

Málið var til umfjöllunar á fundi bæjarráðs þann 6. október. Viðaukinn er vegna greiðslna til Subsea7 og NOV vegna kaupa og flutnings á lögninni.

Í fundargerðinni kemur fram að ekki hafi verið gert ráð fyrir greiðslunum í fjárheimildum ársins 2026. Ástæðan sé sú að bæjarstjórn telji almannavarnir vera á hendi ríkisins og að ríkið eigi því að greiða fyrir þær.

Bæjarráð samþykkti fjárfestingarviðaukann samhljóða.

Óska eftir staðfestingu ráðuneytisins

Vestmannaeyjabær hefur sent dómsmálaráðuneytinu erindi þar sem óskað er eftir formlegri staðfestingu á því að NSL-4 teljist almannavarnalögn og mikilvægur almannavarnainnviður. Lögninni er ætlað að tryggja órofinn aðgang Vestmannaeyjasamfélagsins að neysluvatni.

Jafnframt hefur bærinn óskað eftir að ráðuneytið komi þeirri afstöðu á framfæri við önnur hlutaðeigandi ráðuneyti svo unnt verði að ljúka viðræðum um fjármögnun verkefnisins.

Samkvæmt fundargerðinni átti afstaða dómsmálaráðuneytisins að berast innviðaráðuneytinu 1. október. Bæjarstjóri hafði óskað eftir afriti af svarinu, en það hafði ekki borist þegar bæjarráð fundaði.

Staða lagnarinnar enn til skoðunar

RÚV greindi frá því í gær að í þremur ráðuneytum væri verið að skoða hvort lögnin yrði viðurkennd sem almannavarnalögn. Sú viðurkenning liggur því ekki enn fyrir.

Samþykkt viðaukans felur í sér að sveitarfélagið fjármagnar greiðslurnar með handbæru fé á meðan það leitar niðurstöðu um aðkomu ríkisins.

Nýjustu fréttir

Bærinn leggur fram 432 milljónir vegna vatnslagnarinnar
Herjólfur fækkar ferðum í dag
Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden
Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.