Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden
Erlingur Richardsson í leik með ÍBV á síðustu leiktíð. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Eyjamaðurinn Erlingur Birgir Richardsson byrjar vel sem aðalþjálfari þýska liðsins Minden en liðið vann öruggan 30-21 sigur á Ludwigshafen á útivelli í þýsku B-deildinni í handbolta í gærkvöldi. Þetta var annar sigur liðsins í jafnmörgum leikjum undir stjórn Erlings.

Minden hafði mikla yfirburði í leiknum og leiddi með níu mörkum í hálfleik, 16-7. Gestirnir náðu mest tólf marka forskoti í síðari hálfleik og héldu síðan öruggri forystu til leiksloka.

Minden er í sjöunda sæti deildarinnar með sjö stig eftir sjö leiki. Ludwigshafen situr í 15. sæti með fjögur stig.

Næsti leikur Minden er á heimavelli gegn toppliði Eintracht Hagen föstudaginn 16. október.

Nýjustu fréttir

Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.