Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu en þó var eitthvað um það að aðstoða þurfti fólk vegna ófærðar í bænum. Helgin gekk með ágætum og lítið um útköll vegna skemmtanahalds.
Einn ökumaður var stöðvaður í vikunni vegna gruns um að hann væri undir áhrifum ávana- og fíkniefna við aksturinn.
Töluverður erill var hjá lögreglu í byrjun þessarar viku vegna ofsaveðurs sem gekk yfir landið. Sett var óvissustig vegna slæmrar verðurspá. Um kvöldmatarleitið í gær var komið ofsaveður af austri og tilkynningar byrjaðar að koma til lögreglunnar um foktjón. Um kl.20:00 óskaði lögreglustjóri Vestmannaeyja eftir við Ríkislögreglustjóra að sett yrði hættustig fyrir Vestmannaeyjar. Alls bárust lögreglu 26 tilkynningar um tjón vegna óveðursins frá kl. 14:00 til miðnættis. Nokkurt tjón var í þessu óveðri og það mesta á húseign við Smáragötu en þar fauk hluti þaks af húsinu. �?nnur útköll voru vegna þakplatna sem voru að losna, rúðubrots ofl. �?á aðstoðaði lögregla starfsfólk stofnana og fyrirtækja við að komast bæði til vinnu og til síns heima. Um kl.01:00 í nótt þegar veðrið var farið að ganga niður var hættuástandi aflýst og óvissustig aftur sett á. Um 30 félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja stóðu svo sannarlega í ströngu í þessu óveðri við að sinna útköllum og til að aðstoða íbúa Vestmannaeyja í þessum hamförum. Vill lögreglan þakka þeim veitta aðstoð.